Saltfiskafurðir

Oddi hf.  hefur frá upphafi starfrækt saltfiskvinnslu og var fyrirtækið m.a. til þess stofnað.  Hornmerki (vörumerki) félagsins OPO er mjög þekkt á saltfiskmörkuðum erlendis, en helstu markaðslönd eru Spánn, Ítalía og Grikkland.  Einnig er aukin vinnsla úr dragnótafiski svokallaður AB+ fiskur sem er framleiddur fyrir Ítalíu -og Spánarmarkað.  Oddi hf. framleiðir um 500-700 tonn af saltfiskafurðum á ársgrundvelli og er stærsti hluti framleiðslunnar flattur þorskur en flök hafa einnig verið stór þáttur framleiðslunnar, allt eftir markaðsaðstæðum.  

Oddi hf. leggur mikla áherslu á gæðaeftirlit í framleiðslu saltfiskafurða og er öll framleiðsla fyrirtækisins seld út á stöðugleika í gæðum framleiðslunnar.  

Stærsti hluti saltfiskafurða  er seldur gegnum sölunet Iceland Seafood  og  Nastar ehf, en vaxandi hluti er seldur beint til kaupenda erlendis.

 



  • Oddi hf
  • Eyrargata 1 
  • 450 Patreksfirði
  • Sími; 450-2100 
  • Fax; 456-1120 
  • oddi@oddihf.is